Sérfræðingur á upplýsingtæknisviði – Vöruhús Bakkans
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningBakkinn vöruhótelBakkinn vöruhótel sérhæfir sig í vöruhýsingu, pökkun, vörumerkingu, afgreiðslu og dreifingu á vörum fyrir viðskiptavini sem kjósa að úthýsa sinni vöruhúsastarfsemi að einhverju eða öllu leyti. VinnustaðurinnVinnustaðurinn
Sérfræðingur á upplýsingtæknisviði
- Vöruhús Bakkans
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi til liðs við okkur á upplýsingatæknisviði vöruhússins. Um er að ræða nýtt starf vegna umsvifa vöruhússins, fjölbreytt og skemmtilegt starf þar sem þú kemur að daglegum rekstri, vinnur með upplýsingakerfi, gagnaúrvinnslu og tæknibúnað.
Í starfinu færð þú tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif, vinna náið með rekstrarteymi vöruhússins og upplýsingatæknisviði, og taka þátt í að bæta ferla og finna snjallar lausnir í hröðu og lifandi umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoð við uppsetningu, prófanir og innleiðingu breytinga í vöruhúsakerfum
Daglegur rekstur, umsýsla og notendastuðningur við Manhattan Scale (WMS)Gagnaúrvinnsla, greining og skýrslugerð (t.d. rekstrargögn, afköst, lagerhreyfingar)
Þátttaka í þróun og viðhaldi heimasíðu og/eða innri veflausna eftir þörfum
Viðhald og bilanagreining á tölvubúnaði í vöruhúsi, m.a.:
Handtölvur / skannar
Merkimiðaprentarar
Vinnustöðvar og tengdur jaðarbúnaður
Samskipti við birgja hug- og vélbúnaðar eftir þörfum
Þátttaka í umbótaverkefnum og sjálfvirknivæðingu ferla Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun eða reynsla á sviði upplýsingatækni, tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu sviði
Reynsla af vöruhúsakerfum er kostur, sérstaklega Manhattan Scale
Góð færni í gagnavinnslu og greiningu (t.d. Excel, Power BI, SQL eða sambærilegt)
Grunnþekking á vefumsjón / veflausnum er kostur
Þekking á tölvu- og netbúnaði, bilanagreiningu og almennu IT-viðhaldi
Góð samskiptahæfni og þjónustulund
Skipulagður, sjálfstæður og lausnamiðaður vinnubrögð Fríðindi í starfi
Hluti af Festi samstæðunni með tilheyrandi afsláttum hjá Krónunni, Elko, N1 og Lyfju
Aðgengi að velferðarpakka Bakkans
Íþróttastyrk
Niðurgreiðslu af morgun- og hádegismat
Persónulegir eiginleikar
- Áhugi á tækni og rekstri
- Geta til að vinna í hraðskreiðu umhverfi
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Vilji til að læra og þróast í starfi Auglýsing birt3. apríl 2026Umsóknarfrestur15. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynMeðalhæfniEnskaNauðsynMeðalhæfniStaðsetningSkarfagarðar 2, 104 ReykjavíkStarfstegundFullt starfHæfniPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.HugbúnaðarprófanirPathCreated with Sketch.Sjálfvirkar prófanirPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækniStarfsgreinarSérfræðistörfUpplýsingatækniStarfsmerkingarUpplýsingafræðingurForritariTölvunarfræðingurSækja umSambærileg störf (12) Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.