TvinnaRemote

Kerfisstjóri

Description

Kerfisstjóri

  1. Jul 2021 Fullt starf

Ef þú ert lausnamiðaður, drífandi og jákvæður einstaklingur þá erum við með fjölbreytt starf á upplýsinga- og tæknisviði fyrir þig!

Um er að ræða framtíðarstarf í krefjandi og spennandi umhverfi. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni:

  • Dagleg notendaþjónusta og kerfisumsjón
  • Uppsetning á tölvum, símum og öðrum jaðartækjum
  • Vinnur að almennu viðhaldi og viðgerðum á tækjabúnaði
  • Sinnir útköllum og bilanatilkynningum
  • Umsjón með leyfismálum og aðgangi notenda í AD, Office 365 og öðrum kerfum
  • Fræðsla og þjáfun til notenda
  • Margvísleg önnur verkefni sem tengjast starfinu
  • Starfsmaður leysir af eftirlitsmann fasteigna og aðstoðar hann eftir verkefnum

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði kerfisstjórnunar
  • Reynsla af rekstri tölvukerfa, netkerfa og sýndarumhverfa o.s.frv. er skilyrði
  • Góð þekking á öllum helsta notendabúnaði
  • Þekking á kerfum ríkisins er kostur
  • Góð þekking á Office 365 umhverfinu og Acitve Directory
  • Góð þekking á símakerfum, myndavélakerfum
  • Reynsla í bilnagreiningu er skilyrði
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti
  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni og þjónustulipurð

Upplýsingar fyrir umsækjendur

Sótt er um starfið rafrænt á www.hss.is undir Laus störf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn fylgi ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum, viðtölum við umsækjendur og/eða umsögnum. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði