Sérfræðingur í vöruhúsi gagna
Description
Sérfræðingur í vöruhúsi gagna
- Mar 2019 Fullt starf
Borgun er leiðandi fjármálafyrirtæki í þróun og hagnýtingu lausna á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar.
Hugbúnaðarþróun Borgunar leitar að öflugum liðsmanni til að takast á við fjölbreytt, skemmtileg og krefjandi verkefni.
Helstu verkefni:
- Greining, hönnun og þróun vöruhúss gagna, gagnamarkaða og teninga.
- Viðhald og hönnun á stofn- og vöruhúsagögnum.
- Þróun, viðhald og rekstur gagnavinnslna.
- Framsetning viðskiptaupplýsinga í skýrslur og á mælaborð.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu.
- Mjög góð þekking og reynsla af T-SQL og Microsoft SQL Server er skilyrði.
- Góð þekking á SQL Server Analysis Services (SSAS), SQL Server Integration Services
(SSIS), SQL Server Reporting Services (SSRS) og PowerBI er æskileg.
- Reynsla af notkun WhereScape Red er kostur.
- Reynsla af gerð gagnalíkana og þróunar á vöruhúsi gagna er kostur.
- Þekking og reynsla af Agile aðferðafræði er kostur.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Hæfni til að vinna í teymum.
- Fagmennska, frumkvæði og ábyrgð við úrlausn verkefna.
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurjón Þráinsson, þróunarstjóri, í síma XXX-XXX-XXXX. Umsóknum skal skila á vef Borgunar, https://www.borgun.is. Umsóknafrestur er til og með 20. mars.
Skills
Sql ServerSQLAgile