Sérfræðingar í mælarekstri
Description
Sérfræðingar í mælarekstri
- Nov 2023 Fullt starf
Veðurstofa Íslands auglýsir eftir tveimur sérfræðingum í mælarekstri, sem koma til starfa á Athugana- og upplýsingatæknisviði. Sviðið sinnir margþættu hlutverki fyrir langtíma náttúrufars- og auðlindarannsóknir og vöktun náttúruvár. Í boði eru spennandi og krefjandi störf í hópi 20 starfsmanna við rekstur á mælikerfum sem telja yfir 600 stöðvar vítt og breytt um landið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sérfræðivinna við mælarekstur, eftirlit, uppbyggingu og þróun mælikerfa. Starfið spannar mælirekstur á breiðu sviði, veðurmælinga, vatnamælinga, jarðeðlisfræðilegra mælinga og fjarkönnunar, í þessu tilfelli með sérstaka áherslu á rekstur vatnamælikerfa og mælikerfi fjarkönnunar. Rekstur vatnamælikerfa innifelur rekstur mælikerfa á tilteknum landsvæðum með áherslu á þekkingaröflun um vatnafar svæðisins og úrvinnslu mæligagna. Rekstur mælikerfa fjarkönnunar innifelur rekstur fastra og færanlegra veðursjáa (ratsjáa) með áherslu á sérhæfða tækniþjónustu og miðlun gagna. Störfin innifela töluverða útivist og vinnu fjarri heimili, enda eru mælistöðvar staðsettar allt frá ystu annesjum og upp á hæstu jökla.
Hæfniskröfur
Háskólanám á sviði verkfræði, tæknifræði eða raunvísinda með sterka tækni- og tölvuþekkingu. Framhaldsmenntun (MS) á framangreindum sviðum er kostur
Reynsla í beitingu og viðhaldi mælitækja. Þekking á rekstri mælikerfa er kostur
Þekking og/eða reynsla af vinnu með tímaraðir og stór gagnasöfn er kostur
Almenn þekking á náttúru Íslands
Þekking á sviði veðurfræði, vatnafræði eða fjarkönnunar er kostur
Góð færni í íslensku og ensku
Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu
Skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði og faglegur metnaður
Reynsla af þróun, smíði, sannprófun og kvörðun mælibúnaðar er kostur
Reynsla á sviði öryggismála og meðferð öryggis- og fjarskiptabúnaðar er kostur
Reynsla af útivist og ferðum í óbyggðum ásamt ökuréttindum C1E er kostur
Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðanleiki, samvinna og framsækni. Ráðningar hjá stofnuninni taka mið af þessum gildum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Umsókninni þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Umsóknarfrestur er til og með 11. desember nk.