Hugbúnaðarsérfræðingur
Description
Hugbúnaðarsérfræðingur
- Jun 2015 Fullt starf Gagnaveita Reykjavíkur leitar að einstaklingi sem býr yfir skipulags- og samskiptafærni til liðs við Tæknideild GR. Tæknideild ber ábyrgð á uppbyggingu og rekstri eins umfangsmesta IP netkerfis á landinu. Hugbúnaðarumhverfi GR samanstendur m.a. af hugbúnaði byggðum á Python, WebMethods, C# og Java. Um er að ræða nýtt starf sem tækifæri gefst til að móta. Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Hönnun og þróun á hugbúnaðarkerfum GR
- Samþætting við ytri og innri kerfi
- Val á hugbúnaðarlausnum
- Innleiðing á kerfum í rekstur Menntunar- og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun á sviði tölvunar- eða verkfræði eða sambærileg menntun
- Víðtæk reynsla í hönnun og þróun hugbúnaðar
- Víðtæk reynsla af hugbúnaðarþróun með opnum hugbúnaði
- Reynsla af rekstri hugbúnaðarkerfa
- Geta til að koma hönnun á framfæri með myndrænum og skriflegum hætti
- Metnaður og sjálfstæð vinnubrögð Bæði konur og karlar eru hvött til að sækja um starfið. Stefna fyrirtækisins er að jafna hlut kynjanna m.t.t. starfstækifæra.
Upplýsingar fyrir umsækjendur Nánari upplýsingar veitir XXXX XXXX mannauðsráðgjafi í netfanginu [REDACTED_EMAIL]. Vinsamlegast sækið um á: Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2015.
Skills
PythonJava