TvinnaRemote

Full Stack forritari

Description

Full Stack forritari

  1. Mar 2026 Fullt starf

Vilt þú hafa jákvæð áhrif á heilbrigðiskerfið í gegnum tækni?

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum alhliðaforritara (fullstack) með brennandi áhuga á að þróa öflugar og öruggar hugbúnaðarlausnir fyrir heilbrigðisstarfsfólk og sjúklinga.

Hjá Helix Health hafa traustar og skilvirkar lausnir bein áhrif á líf fólks. Hver lína af kóða getur sparað dýrmætan tíma, aukið öryggi og haft raunveruleg áhrif á líðan og lífsgæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks.

Ef þú vilt vinna að lausnum sem skipta máli, þá viljum við heyra frá þér.

Hlutverk og ábyrgð

  • Taka virkan þátt í þróun og viðhaldi hugbúnaðarlausna Helix
  • Vinna náið með fjölbreyttum teymum með því markmiði að skapa öflugar og áreiðanlegar lausnir
  • Nýta ný tól og aðferðir (m.a. gervigreind) til að auka skilvirkni og gæði í þróun
  • Sjá til þess að þróun bakenda fylgi viðurkenndum vinnulögum og bestu verklagsreglum, með áherslu á gæði, öryggi og viðhald
  • Taka þátt í samþættingu milli kerfa og tryggja áreiðanlegt gagnaflæði
  • Deila þekkingu, taka þátt í kóðaúttektum og styðja samfellda faglega þróun teymisins
  • Leggja sitt af mörkum til lausnamiðaðs og jákvæðs teymisanda þar sem samvinna og virðing eru í forgrunni

Hæfni

  • Reynsla af.NET (C#)
  • Reynsla af Angular
  • kostur
  • Reynsla af GraphQL
  • kostur
  • Þekking á gagnagrunnum
  • kostur
  • Reynsla af samþættingu milli kerfa
  • kostur
  • Jákvætt viðhorf, lausnamiðuð hugsun og góð samskiptahæfni
  • Menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegum greinum, eða sambærileg reynsla

Við bjóðum

  • Tækifæri til að starfa í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi.
  • Hvetjandi verkefni þar sem virðing og samvinna eru lykilatriði.
  • Sveigjanleika og tækifæri til persónulegs og faglegs vaxtar.
  • Tækifæri til að vinna með nýjustu tækni, þar á meðal gervigreind, í raunverulegum verkefnum.
  • Samgöngustyrk og íþróttastyrk
  • Líkamsræktaraðstaða í húsinu
  • Frábært mötuneyti
  • Skýra og metnaðarfulla nálgun á fæðingarorlof sem styður vel við starfsfólk

Vinsamlegast sendið ferilskrá og kynningarbréf með umsókn.

Helix Health hefur þróað tæknilausnir fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi í 30 ár. Hér vinnur metnaðarfullt teymi með fjölbreyttan bakgrunn sem hefur það að leiðarljósi að vilja hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Hjá Helix starfa um 50 starfsmenn í fjölbreyttum og krefjandi verkefnum, þar sem hver lína af kóða hefur raunveruleg áhrif.

Umsóknarfrestur er til og með 9.apríl. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.


) Upplýsingar fyrir umsækjendur

Vinsamlegast sækið um í gegnum heimasíðu Helix https://www.helixhealth.is/starfstaekifaeri/alhlida-forritari-(fullstack)

Skills

GraphQLAngular

Want AI to find more roles like this?

Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.

Try personalized matching