Kerfisstjóri
Description
Kerfisstjóri
- Apr 2023 Fullt starf
Sjúkratryggingar leita að nýjum liðsfélaga á Upplýsingatæknisviði. Í boði er fjölbreytt starf í góðu vinnuumhverfi. Upplýsingatæknisvið sér um rekstur tölvukerfa Sjúkratrygginga. Framundan eru skemmtileg verkefni við áframhaldandi tækniþróun innan stofnunarinnar.
Sjúkratryggingar er lykilstofnun í íslensku heilbrigðiskerfi. Við tryggjum réttindi sjúkratryggðra og aðgengi að góðri og hagkvæmri heilbrigðisþjónustu með það markmið að leiðarljósi að vernda heilbrigði og jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstur miðlara
Rekstur miðlarahugbúnaðar (gagnagrunnar, vefþjónar, eftirlitshugbúnaður)
Uppfærslur miðlara
Uppfærslur á hugbúnaði á miðlurum
Vöktun viðburða í öryggiskerfi
Rýni eldveggjareglna
Aðgerðir vegna viðburða í SIEM kerfi
Úrlausn ábendinga frá SOC
Samstarf við upplýsingaöryggisstjóra um framþróun öryggismála
Skjölun uppsetningar kerfa og innviða
Vinna við innleiðingu ferla tengt uppbyggingu stjórnkerfis upplýsingaöryggis
Önnur verkefni sem tengjast framþróun upplýsingakerfa
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af rekstri tölvukerfa að minnsta kosti 3-5 ár
Þekking og reynsla af rekstri á Windows Server stýrikerfum
Þekking og reynsla af rekstri á Active Directory
Þekking og reynsla af rekstri á Red Hat stýrikerfum
Þekking og reynsla af rekstri á MS SQL gagnagrunnum kostur
Þekking og reynsla af rekstri á Oracle gagnagrunnum kostur
Þekking og reynsla af rekstri á vefþjóna nginx, Apache og/eða IIS
Reynsla af notkun vaktkerfa eins og Site24/7 eða sambærilegt
Reynsla af notkun beiðnakerfa eins og Jira Service Management
Þekking og reynsla af uppbyggingu netkerfa, eldveggja og útfærslu aðgangslista kostur
Þekking og reynsla af rekstri skýjahýsinga Azure og/eða AWS
Góð færni í íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
Frumkvæði, vandvirkni og hæfni til að starfa sjálfstætt og í teymi
Góð samskiptahæfni, þjónustulund og jákvætt viðmót
Fríðindi í starfi
Fjarvinna allt að 2 daga í viku (í samráði við yfirmann)
Sveigjanlegur vinnutími
Full stytting vinnuvikunnar til boða meðlimum stéttarfélaga sem um það hafa samið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og sérstakt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Sótt er um starfið á Starfatorgi ríkisins á www.starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Ráðning tekur mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar sjukra.is.