TvinnaRemote

Texta- og hugmyndasmiður

Description

Texta- og hugmyndasmiður

  1. Feb 2012 Fullt starf

Við auglýsum eftir frjóum og flinkum hugmynda- og textasmið, sem þarf að geta unnið sjálfstætt og tekið þátt í hópastarfi og krefjandi verkefnum í líflegu umhverfi. Verkefnin eru af ýmsum toga, stór og smá; allt frá einu orði til stórra herferða.

Hæfniskröfur:

\ Góð þekking á tungumálinu og reynsla af ritun og meðferð þess

\ Góð reynsla af hugmyndavinnu og handritagerð er kostur

\ Brennandi áhugi á markaðsmálum

\ Hugmyndaauðgi

\ Jákvæðni, gott skap og hæfni í mannlegum samskiptum

Hjá PIPAR\TBWA starfa 28 manns. Stofan er sú fyrsta á landinu sem hefur sérdeild samfélagsvefja, en þar starfa þegar fimm sérfræðingar. PIPAR\TBWA er hluti af TBWA sem er ein af framsæknustu samstarfskeðjum auglýsingastofa í heiminum. Þar starfa um 12.000 manns á 258 stofum í 77 löndum.


Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um í gegnum Facebook síðu PIPARTBWA https://www.facebook.com/pipartbwa?sk=app_281167038618560