Back to listings
DeloitteKópavogur, Kópavogsbær

Gagna- og gervigreind Deloitte (AI & Data)

Deadline: 2026-01-26
Project-Based

Description

Tækniráðgjöf Deloitte leitar að ráðgjafa með reynslu og áhuga á gögnum, greiningum og gervigreind (AI). Við leggjum áherslu á fjölbreyttan bakgrunn og reynslu, ef þú hefur áhuga og grunnfærni í gagnagreiningu og vilt læra meira, þá viljum við heyra frá þér. Stór og spennandi verkefni eru framundan hjá teyminu, þar sem þú færð tækifæri til að þróa þig áfram og taka þátt í að móta framtíð gagnadrifinna lausna fyrir viðskiptavini okkar.

Helstu verkefni Þú hjálpar viðskiptavinum okkar með uppsetningu á gagnaumhverfum og býrð til greiningar sem ýta undir gagnadrifnar ákvarðanir. Þú nýtur þess að vinna í teymi og mynda tengsl, bæði innanhúss sem og við viðskiptavini. Dæmi um hvað þú fæst við og berð ábyrgð á: Þú tekur þátt í að greina þarfir viðskiptavina og móta gagnalausnir. Uppsetning og þróun gagnaumhverfa, þar á meðal gagnavöruhús (data warehouse) og gagnavatnahús (data lakehouse). Vinnur með viðskiptagreindartól (t.d. Power BI, Tableau, Looker) til að búa til greiningar og framsetja gögn á skýran og áhrifaríkan hátt. Þú tekur þátt í hönnun gagnalíkana og greiningu gagna til að styðja við ákvarðanatöku. Þú vinnur í teymi og myndar tengsl bæði innan Deloitte og við viðskiptavini. Þú styður við innri þróun, þekkingardeilingu og nýsköpun innan teymisins. Þú tekur þátt í innleiðingu og aðlögun nýrra lausna og tækni sem geta aukið virði fyrir viðskiptavini. Þú fylgist með nýjustu straumum og þróun í gervigreind (AI) og gagnatækni og miðlar þekkingu til viðskiptavina og samstarfsfólks. Um teymið Teymið vinnur  þvert á svið innan Deloitte á Íslandi og Deloitte á Norðurlöndunum. Bakgrunnur okkar er fjölbreyttur. Við erum hluti af Tækniráðgjöf Deloitte (Technology & Transformation). Á sviðinu starfar úrvals lið sérfræðinga sem leggja sig fram í þjónustu við viðskiptavini.

Qualifications: Bakgrunnur, reynsla og færni Háskólamenntun á sviði raunvísinda, stærðfræði, verkfræði, tölfræði, tölvunarfræði, hugbúnaðarþróunar eða önnur menntun sem nýtist í starfi. Þekking og reynsla af gagnavöruhúsum (data warehouse) og/eða gagnavatnahúsum (data lakehouse). Reynsla af gagnagreiningu, hönnun gagnalíkana og framsetningu gagna. Reynsla af viðskiptagreindartólum eins og Power BI, Tableau eða Looker. Kunnátta eða reynsla af lausnum eins og Microsoft Fabric, Databricks, Snowflake, Azure Synapse eða Azure Data Factory er kostur. Færni í SQL, Python eða sambærilegum gagnaforritunartungumálum er kostur. Áhugi á gervigreind (AI) og vilji til að læra um og hagnýta nýjustu lausnir á þessu sviði til að skapa virði fyrir viðskiptavini. Hæfni í mannlegum samskiptum, auðvelt með að byggja traust sambönd og að vinna í teymi.

Starfsþróun þín Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið („Buddy-kerfi“) Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu Þú verður með reyndan Coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum Að auki bjóðum við upp á: Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf Styrki til foreldra Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum á Dalvegi Launaður dagur til að sinna sjálfboðaverkefnum Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu, og leikjaherbergi Við hlökkum til að fá umsóknina þína Við hlökkum til að fá umsóknina þína.  Nánari upplýsingar um starfið veitir Olgeir Óskarsson, Manager ( inquiries@consultant.dev ).  Tekið er á móti umsóknum til og með 26. janúar 2026. Hjá Deloitte metum við mismunandi hæfileika, sjónarmið og reynslu, þar sem það gerir okkur kleift að leysa flókin verkefni fyrir viðskiptavini okkar á árangursríkan hátt. Við hvetjum þig til að sækja um stöðuna ef þú telur að hæfileikar þínir geti stuðlað að árangri liðsins okkar. Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.

Skills

LookerDatabricksTableauAzurePythonSnowflakeSQLPower Bi