Verkefnastjóri – fjárhagslegar áreiðanleikakannanir
Description
Fjármálaráðgjöf Deloitte leitar að öflugum verkefnastjóra til að bætast í hóp reyndra ráðgjafa á sviði fjárhagslegra áreiðanleikakannana (e. Financial due diligence). Við veitum fyrirtækjum, fjárfestingarsjóðum og fjármögnunaraðilum þjónustu og ráðgjöf í tengslum við kaup, sölu og sameiningar fyrirtækja. Ráðgjafar vinna náið með viðskiptavinum og veita virðisaukandi þjónustu í hæsta gæðaflokki, sem skilur eftir verðmæta þekkingu.
Helstu verkefni: Í grundvallaratriðum er tilgangur áreiðanleikakönnunar að samræma vitneskju og upplýsingar kaupanda og seljanda á félagi. Með ítarlegum fjárhagslegum greiningum stuðlar áreiðanleikakönnun að því að takmarka óvissu þannig að hægt sé að fækka verulega fyrirvörum og ábyrgðum í kaupsamningi um viðskiptin Verkefnastjóri ber ábyrgð á daglegri stjórnun einstakra verkefna, undir handleiðslu reyndra ráðgjafa. Verkefnastjóri sinnir meðal annars greiningarvinnu og skýrsluskrifum, samskiptum við viðskiptavini og þjálfun reynsluminni ráðgjafa.
Qualifications: Bakgrunnur, reynsla og færni Meistaragráða á sviði reikningshalds, fjármála, hagfræði eða skyldra greina Að minnsta kosti 5 ára starfsreynsla í fjármálum, reikningshaldi og/eða endurskoðun Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni á skýran og skilmerkilegan hátt Góð þekking á Microsoft Excel og PowerPoint Nákvæmni og metnaður til að skila af þér góðu verki Þú hefur gaman af því að takast á við og leysa áskoranir Það er lítið mál fyrir þig að vinna sjálfstætt en virkar vel í teymi enda býrðu yfir samskiptafærni Geta til að tjá þig í ræðu og riti, með faglegum hætti, á íslensku og ensku Metnaður og áhugi til að læra og þróast í starfi í gegnum krefjandi verkefni á innlendum og alþjóðlegum vettvangi
Starfsþróun þín Við upphaf starfs færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið („Buddy-kerfi“) Þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu Þú verður með reyndan Coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum geirum Við styðjum við vöxt þinn með símenntunartækifærum Að auki bjóðum við upp á: Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf Styrki til foreldra Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum á Dalvegi Launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu, og leikjaherbergi Við hlökkum til að fá umsóknina þína Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Grétarsdóttir (inquiries@consultant.dev). Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Tekið er á móti umsóknum í gegnum heimasíðu Deloitte, www.deloitte.is , til og með 26.janúar nk. Vilt þú hafa áhrif? Hjá Deloitte skiptir þitt framlag máli því saman, sem ein heild, vinnum við að því að hafa áhrif á viðskiptavini, samstarfsfélaga og samfélag. Þú færð tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum þvert á svið, starfsstöðvar og lönd, auka hæfni þína og færni og hafa góðan stuðning til vaxtar og þróunar í starfi.