Tækjamenn/konur með meirapróf
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningHreinsitækni ehf.Hreinsitækni ehf., er leiðandi fyrirtæki á sviði sópunar og þvotta á gatnakerfum og gönguleiðum. Félagið var stofnað árið 1976 og hefur starfað óslitið síðan. Í upphafi árs 2007 keypt félagið Holræsahreinsun ehf. og sameinaði félögin undir nafni Hreinsitækni ehf. Holræsahreinsun ehf. var elsta og öflugasta fyrirtækið á sviði holræsahreinsunar og tengdrar þjónustu. Holræsahreinsun ehf. var stofnað árið 1982, en breytt í hlutafélag árið 1987. Á þeim árum kappkostaði félagið að fylgja eftir þeirri öru þróun sem orðið hafði í starfseminni og eins að vera með bestu og nýjustu tækin til að takast á við hvaða verk sem er og á sem hagkvæmastan hátt. Í lok árs 2007 keypti félagið Uppdælingu ehf. og sameinaði félögin undir nafni Hreisnitækni ehf. í byrjun árs 2008. Uppdæling ehf. hafði séð um söfnun úrgangsolíu frá verkstæðum, skipum ofl. Einnig hreinsun olíutanka og flutningi á hvers konar spilliefnum. Uppdæling ehf hafði boðið upp á þessa þjónustu allt frá árinu 1993. Með sameiningu þessara þriggja fyrirtækja er tækjafloti Hreinsitækni ehf. sá öflugasti sem til er á Íslandi í dag. Flotinn er mjög nýlegur og sambærilegur við það besta sem í boði er hvar sem er í heiminum. Hreinsitækni ehf. er nú komið með þá þekkingu og tæki til að geta boðið einstaklingum, fyrirtækjum, sveitar- og bæjarfélögum heildarlausnir í þjónustu á fráveitukerfum og hreinsun á gatna- og gönguleiðum. Starfsmenn félagsins búa yfir víðtækri reynslu og eru fastráðnir um 40. Hreinsitækni ehf. er með skýra umhverfisstefnu og leggur mikla áherslu á að nota eingöngu umhverfisvæn efni við öll þrif. Á það við hvort sem er þrif á spilliefnum eða almennum og reglubundnum þrifum á gatnakerfum, byggingum oflVinnustaðurinnVinnustaðurinn
Tækjamenn/konur með meirapróf
Hreinsitækni ehf leitar að öflugum tækjamönnum/konum með meiraprófsréttindi á starfsstöð í Reykjavík. Um er að ræða starf á dælubíl/götusóp og önnur tilfallandi störf. Dagvinnutími er 08:00 - 16:00, en yfirvinna er einnig í boði. Um er að ræða framtíðarstarf.
Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna á dælubíl/götusóp.
Umhirða tækja
Verkefnin eru fjölbreytt og yfirvinna í boði á álagstímum.
Önnur tilfallandi störf Menntunar- og hæfniskröfur
Meiraprófsréttindi C
Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í töluðu og rituðu máli.
Stundvísi og reglusemi er skilyrði. Fríðindi í starfi
Heilsuræktarstyrkur
Umsóknarfrestur er til og með 15.04.2026
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Hreinsitækni.
Hreinsitækni ehf., er leiðandi fyrirtæki á sviði sópunar og þvotta á gatnakerfum og gönguleiðum. Félagið var stofnað árið 1976 og hefur starfað óslitið síðan.
Tækjafloti Hreinsitæknis er sá öflugasti sem til er á Íslandi í dag. Flotinn er mjög nýlegur og sambærilegur við það besta sem í boði er hvar sem er í heiminum. Hreinsitækni er nú komið með þá þekkingu og tæki til að geta boðið einstaklingum, fyrirtækjum, sveitar- og bæjarfélögum heildarlausnir í þjónustu á fráveitukerfum og hreinsun á gatna- og gönguleiðum.
Hjá Hreinsitækni vinnur flottur og fjölbreyttur hópur starfsmanna sem margir hverjir hafa unnið hjá okkur til fjölda ára. Vegna árstíðarbundinna verkefna þurfum við að fjölga í hópnum.
Auglýsing birt27. mars 2026Umsóknarfrestur15. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynMjög góðStaðsetningStórhöfði 37, 110 ReykjavíkStarfstegundFullt starfHæfniPathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.VinnuvélaréttindiStarfsgreinarIðnaðarstörfStarfsmerkingarMeiraprófsbílstjóriVélamaðurSækja umSambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.