AlfredGjáhella 4, 221 Hafnarfjörður

Bókari

Description

AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningHéðinnHéðinn er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni með yfir 100 ára reynslu af þjónustu við sjávarútveg, stóriðju og orkuiðnað, bæði hérlendis og erlendis. Hjá fyrirtækinu starfa um 150 manns við fjölbreytt störf, allt frá hönnun að fullbúnum vörum ásamt viðhalds- og þjónustuverkefnum um allan heim. Héðinn leitast við að veita samkeppnishæfa þjónustu á öllum sviðum og leggur mikið upp úr góðri starfsaðstöðu og aðbúnaði. Að auki leggur fyrirtækið áherslu á að fylgja framþróun í tækjakosti eins og unnt er til að auðvelda störf og auka gæði og framleiðni. Starfsemin snýst einkum um fjölbreytta málmsmíði, vélaviðgerðir, endurnýjun og viðhald og helstu viðskiptavinir eru sjávarútvegsfyrirtæki, orkufyrirtæki, stóriðjufyrirtæki, sveitarfélög og önnur málmiðnaðarfyrirtæki. Stærstu verkefnin í dag eru fyrir sjávarútveginn og stóriðju. Þessi verkefni spanna allt frá því að reisa fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi eða úti í heimi yfir í umhverfisvæna nýsköpun, viðgerðir og smíði. Héðinn rekur fimm starfsstöðvar en meginþorri starfsfólks starfar í höfuðstöðvum félagsins við Gjáhellu. Aðrar starfsstöðvar eru þjónustuverkstæði á Grundartanga og útibú á Akureyri og í Noregi. Húsakynnin við Gjáhellu eru 8.000 fermetrar og lóðin 20.000 fermetrar. Í húsinu er mötuneyti fyrir starfsfólk og glæsileg líkamsræktaraðstaða. Að auki hefur nýverið tekið í notkun stórglæsilegt afþreyingarrými fyrir starfsmenn með golf- og skothermi, píluspjöldum og fleiru sem starfsmenn geta nýtt sér utan vinnutíma. VinnustaðurinnVinnustaðurinn

Bókari

Héðinn hf, eitt öflugasta véltæknifyrirtæki landsins, leitar að bókara með góða þekkingu á bókhaldi og uppgjörsvinnu.

Við leitum að einstaklingi sem vinnur af nákvæmni, hefur ríka þjónustulund og metnað fyrir vönduðu reikningshaldi.

Helstu verkefni eru almenn bókhaldsstörf s.s. daglegar bókanir og afstemmingar.

Um er að ræða viðbótarstöðu í öflugu og reynslumiklu teymi þar sem ríkur góður starfsandi og fagmennska.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegar bókanir og afstemmingar.

  • Undirbúningur bókhalds fyrir mánaðarleg uppgjör.

  • Aðstoð við mánaðarlega verkbókhaldsyfirferð.

  • Þátttaka í umbótum og þróun innri ferla er tengjast reikningshaldi.

  • Önnur tilfallandi störf á fjármálasviði. Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi skilyrði.

  • 3-5 ára reynsla af bókhaldi.

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og nákvæm vinnubrögð.

  • Góð þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum.

  • Hæfni í greiningu og framsetningu gagna.

  • Þekking á Business Central er mikill kostur. Fríðindi í starfi

  • Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur.

  • Stórglæsilegt starfsmannarými með golf- og skothermi.

  • Líkamsræktaraðstaða og búningsklefar með sturtu.

  • Öflugt starfsmannafélag og frábær starfsandi.

Héðinn er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á sviði málmiðnaðar og véltækni, með yfir 100 ára sögu. Við bjóðum upp á traust starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum áherslu á sveigjanleika, faglegan vöxt og starfsanda sem byggir á trausti og samvinnu.

**

Auglýsing birt30. mars 2026Umsóknarfrestur8. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynMjög góðStaðsetningGjáhella 4, 221 HafnarfjörðurStarfstegundFullt starfHæfniPathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.UppgjörPathCreated with Sketch.VandvirkniVinnuumhverfiLíkamsræktaraðstaðaSveigjanlegur vinnutímiStarfsgreinarSkrifstofustörfStjórnunarstörfSérfræðistörfStarfsmerkingarBókariAðalbókariReikningshaldSækja umFleiri störf (1)Sambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur

Skills

dotnet.NET

Want AI to find more roles like this?

Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.

Try personalized matching