AlfredSkólabraut 5, 210 Garðabær

Hofsstaðaskóli - ÍSAT kennari

Description

AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningGarðabærGarðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir. Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi. VinnustaðurinnVinnustaðurinn

Hofsstaðaskóli - ÍSAT kennari

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir kennara til að kenna íslensku sem annað tungumál. Í skólanum verða um 500 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt aðalnámskrá

  • Kennsla og skipulagning á námi nemenda með íslensku sem annað tungumál

  • Vinna að gerð einstaklingsnámskrár, áætlanagerð, aðlögun námsefnis og mati á námi nemenda með annað tungumál í samvinnu við kennara og stoðþjónustu skólans

  • Leiða teymisvinnu með umsjónarkennurum og stoðþjónustu

  • Veita ráðgjöf til kennara og foreldra varðandi nám, kennslu og leiðir

  • Vinna að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)*

  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla

  • Menntun í sérkennslufræðum með áherslu á ÍSAT æskileg

  • Íslenskukunnátta á stigi

  • Reynsla af kennslu í grunnskóla

  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum

  • Faglegur metnaður, frumkvæði og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi

  • Ánægja af starfi með börnum og ungmennum

  • Reynsla af Leiðsagnarnámi er æskileg

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi í starfi

  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi

Umsóknarfrestur er til 16. apríl 2026. Starfshlutfall er 60-100%. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst.

Nánari upplýsingar um starfið veita Margrét Einarsdóttir aðstoðarskólastjóri og Anna Steinunn Friðriksdóttir deildarstjóri stoðþjónustu.

Sími Hofsstaðaskóla er XXX-XXX-XXXX og netfang: hskoli @hofsstadaskoli.is

Samkvæmt lögum verða umsækjendur sem eru ráðnir að skrifa undir heimild til upplýsingaöflurnar úr sakaskrá.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Auglýsing birt31. mars 2026Umsóknarfrestur16. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynFramúrskarandiStaðsetningSkólabraut 5, 210 GarðabærStarfstegundFullt starfHæfniPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiStarfsgreinarKennsla og rannsóknirStarfsmerkingarGrunnskólakennariSækja umFleiri störf (7)Sambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur

Skills

dotnet.NET

Want AI to find more roles like this?

Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.

Try personalized matching