AlfredGylfaflöt 9, 112 Reykjavík

Forstöðumaður reksturs tengivirkja

Description

AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningLandsnetLandsnet er þjónustufyrirtæki í eigu þjóðarinnar sem sér um flutning raforku á Íslandi um háspennukerfi landsins. Fyrirtækið tryggir öruggan, stöðugan og skilvirkan flutning rafmagns um landið. Hjá Landsneti starfar kraftmikill hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og menntun. Boðið er upp á faglegt umhverfi með stórum hópi sérfræðinga og fyrirmyndaraðstöðu. Áhersla er lögð á þjálfun og þróun starfsfólks og jafnvægi einkalífs og vinnu skiptir fyrirtækið miklu máli. Gildi Landsnets eru: Ábyrgð

  • Samvinna
  • Virðing.VinnustaðurinnVinnustaðurinn

Forstöðumaður reksturs tengivirkja

Hjá okkur er framtíðin ljós

Flutningskerfi raforku er ein mikilvægasta grunnstoð samfélagsins. Hjá Landsneti vinnum við að því að byggja upp og reka sterkt og öruggt flutningskerfi sem mætir kröfum samtímans og framtíðarinnar.

Við leitum nú að forstöðumanni reksturs tengivirkja sem vill leiða mikilvægt teymi og taka þátt í áframhaldandi þróun og rekstri tengivirkja Landsnets.

Forstöðumaður ber ábyrgð á teymi sem sinnir rekstri og viðhaldi tengivirkja Landsnets ásamt eignastýringu flutningskerfisins. Hlutverk teymisins er að tryggja öruggan og áreiðanlegan rekstur tengivirkja og styðja við áframhaldandi þróun og uppbyggingu flutningskerfisins.

Starfið felur í sér leiðtogahlutverk þar sem áhersla er lögð á öfluga teymisvinnu, faglega þróun og stöðugar umbætur í rekstri.

Næsti yfirmaður forstöðumanns er framkvæmdastjóri Eigna og reksturs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Dagleg stjórnun og leiðtogahlutverk fyrir teymi reksturs tengivirkja.

  • Mannauðsmál teymisins, þar á meðal þróun starfsfólks, velferð og uppbygging árangursmiðaðrar menningar.

  • Ástands- og líftímagreiningar.

  • Áætlanagerð, skipulagning og eftirfylgni við viðhalds- og endurnýjunarverkefni.

  • Áhættumat og stýring rekstraráhættu tengdri starfsemi teymisins.

  • Samskipti og samstarf þvert á fyrirtækið og við hagaðila.

  • Ábyrgð á öryggis- og umhverfismálum innan starfssviðsins. Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, helst á sviði verkfræði eða sambærilegu.

  • Reynslu af stjórnun og rekstri.

  • Hæfni til að leiða teymi í breytingum og þróun.

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og samstarfsvilja.

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.

  • Áhugi á raforkukerfinu og þróun innviða. Fríðindi í starfi

  • Tækifæri til að taka þátt í samfélagslega mikilvægum verkefnum og móta framtíð raforkuflutnings á Íslandi.

  • Gott vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, samstarf og stöðuga þróun.

  • Góð aðstaða á vinnustaðnum, m.a. líkamsrækt og mötuneyti.

  • Samstarf við fjölbreytt, þekkingarmikið og áhugasamt starfsfólk. Auglýsing birt12. mars 2026Umsóknarfrestur31. mars 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynMjög góðStaðsetningGylfaflöt 9, 112 ReykjavíkStarfstegundFullt starfStarfsgreinarHeilbrigðisþjónustaStjórnunarstörfSérfræðistörfStarfsmerkingarStjórnunarstarfForstöðumaðurRafmagnstæknifræðingurRafmagnsverkfræðingurVerkfræðingurSækja umSambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur

Skills

.NETdotnet

Want AI to find more roles like this?

Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.

Try personalized matching