AlfredHverfisgata 113-115 115R, 105 Reykjavík

Þjónustufulltrúi í kærumóttöku LRH

Description

AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningLögreglan á höfuðborgarsvæðinuLögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir öll alltaf. Megin áhersla er lögð á að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Áhersla er á traust og gagnsæi í samskiptum, jafnrétti, starfsánægju og heilbrigðan starfsanda. Gildi LRH eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI. VinnustaðurinnVinnustaðurinn

Þjónustufulltrúi í kærumóttöku LRH

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og metnaðarfullum starfsmanni í stöðu þjónustufulltrúa í kærumóttöku. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt starf í þjónustudeild sem heyrir undir stjórnsýslu- og þjónustusvið embættisins.

Þjónustudeild sinnir stoð- og þjónustuhlutverkum fyrir bæði almenning og aðra hluta lögreglu. Deildin starfrækir m.a. ritaraþjónustu, skýrsluþjónustu, sektarþjónustu, þjónustuborð og munavörslu. Deildin hefur nýlega flutt í nýtt sameinað rými sem hefur skapað líflegt vinnuumhverfi þar sem teymisandi er í forgrunni. Jafnframt er verið að innleiða nýtt þjónustukerfi og kortleggja þjónustuferla með einföldun og skilvirkni að leiðarljósi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 450 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka kæra, ábendinga og erinda frá almenningi, bæði í síma og á stafrænu formi.

  • Skráning og flokkun mála í þjónustukerfi og önnur kerfi embættisins

  • Upplýsingamiðlun og leiðbeiningar til borgara um stöðu mála og næstu skref

  • Eftirfylgni við erindi og samskipti við kærendur til að tryggja góða þjónustuupplifun

  • Samstarf við rannsókn og önnur svið embættisins við flokkun, afhendingu og frágang mála.

  • Þátttaka í umbóta- og þróunarverkefnum tengdum þjónustuferlum og stafrænni þróun deildarinnar Menntunar- og hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af þjónustu-, móttöku- eða sambærilegu starfi er kostur

  • Reynsla af umbótavinnu er kostur.

  • Reynsla af beiðna- eða þjónustukerfum (s.s. Zendesk, Salesforce eða sambærilegum) er kostur

  • Þekking á starfsemi lögreglu og/eða opinberri stjórnsýslu er kostur

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund

  • Mikið frumkvæði, sveigjanleiki og gott álagsþol

  • Skipulögð, vönduð og nákvæm vinnubrögð

  • Góð almenn tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika og færni.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.

Við ráðningar hjá LRH er tekin mið af jafnréttisáætlun embættisins.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til að sannreyna þetta er lögreglu heimil að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrá lögreglu sbr. 28. gr.a. lögreglulaga nr. 90/1996.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum, sem settar eru samkvæmt heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Auglýsing birt31. mars 2026Umsóknarfrestur10. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynMjög góðStaðsetningHverfisgata 113-115 115R, 105 ReykjavíkStarfstegundFullt starfHæfniPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.ÞolinmæðiStarfsgreinarÞjónustustörfStarfsmerkingarÞjónustufulltrúiSækja umFleiri störf (1)Sambærileg störf (12) Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur

Skills

dotnet.NET

Want AI to find more roles like this?

Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.

Try personalized matching