Kennari í Fossvogsskóla
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningFossvogsskóliFossvogsskóli er hverfisskóli með 330 nemendur í 1. til 7. bekk og starfsmenn eru 55 talsins. Skólinn er staðsettur í fallegu umhverfi í Fossvogsdalnum og eru greiðar göngu- og hjólaleiðir frá skólanum í Elliðaárdalinn og í Nauthólsvíkina sem eru meðal fallegustu útivistarsvæða borgarinnar. Skólinn er þátttakandi í Grænfánaverkefninu og verkefninu um Heilsueflandi grunnskóla. Í skólanum er unnið með byrjendalæsi og áhersla á teymiskennslu sem byggist á mikilli samvinnu kennara. Skólinn vinnur í anda,,Uppeldis til ábyrgðar“ og áhersla er á verk- og listgreinar, útivist og fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf. Skólinn hefur á að skipa öflugu og áhugasömu starfsfólki. VinnustaðurinnVinnustaðurinn
Kennari í Fossvogsskóla
Fossvogsskóli er hverfisskóli staðsettur í Fossvogsdalnum þar sem eru greiðar göngu- og hjólaleiðir í ein fallegustu útivistarsvæði borgarinnar; Elliðaárdalinn og Nauthólsvíkina. Nemendafjöldi er um 360 í 1.
- bekk og starfsmenn eru rúmlega 50.
Fossvogsskóli hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Hann er þátttakandi í Grænfánaverkefni Landverndar og verkefni um Heilsueflandi grunnskóla og vinnustaðar. Í skólanum er unnið með Byrjendalæsi og byggt er á teymiskennslu og samvinnu kennara. Fossvogsskóli vinnur í anda Uppeldis til ábyrgðar og áhersla er á verk- og listgreinar, útivist og fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og er tilbúinn til þess að taka þátt í skólaþróun.
Gildi skólans eru vinátta - virðing - vellíðan.
Umsækjendur eru beðnir um að sýna fram á í kynningarbréfi og ferilskrá hvernig þeir uppfylla hverja hæfniskröfu. Þeir umsækjendur sem uppfylla best allar hæfniskröfur og sýna fram á það með skýrum hætti í umsókn sinni verða boðaðir í viðtal.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, „Látum draumana rætast“, þar sem leiðarljósin eru sköpun, jafnrétti, virkni, heilsuefling og þátttaka barna í skólastarfinu, aukið samstarf og fagmennska. Einnig er unnið eftir stefnumótun verkefnisins „Betri borg fyrir börn“ og innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Jafnframt er krafist hreins sakavottorðs í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Helen Eiðsdóttir skólastjóri í síma XXX-XXX-XXXX/ XXX-XXX-XXXX.
Starfið er laust í 100% starfshlutfall. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsóknarfrestur er til að með 06. apríl nk.
Umsókn skal fylgja ferilskrá um menntun og fyrri störf og kynningarbréf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá
Sinnir daglegu fagstarfi og kennslu barna á sínu skólastigi
Vinnur að skólaþróun og uppbyggingu skólasamfélagsins ásamt samstarfsfólki
Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Tekur þátt í teymisvinnu
Starfar samkvæmt stefnu skólans
Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf til kennslu
Sérhæfing eða reynsla af kennslu á yngsta eða miðstigi
Áhugi á skólaþróun
Reynsla af foreldrastarfi
Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði, faglegur metnaður og góð samskiptahæfni
Góð íslenskukunnátta er skilyrði, bæði í ræðu og riti
Góð tölvukunnátta
Reynsla af teymisvinnu í grunnskóla
Hreint sakarvottorð Auglýsing birt25. mars 2026Umsóknarfrestur6. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynFramúrskarandiStaðsetningHaðaland 26, 108 ReykjavíkStarfstegundFullt starfStarfsgreinarKennsla og rannsóknirStarfsmerkingarUmsjónarkennariSækja umFleiri störf (1)Sambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.