Deildarstjóri yfir leikskóladeild Kirkjubæjarskóla
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningSkaftárhreppurSkaftárhreppur er einn af landstærstu hreppum Íslands. Flestir búa í dreifbýli. Íbúar í Skaftárhreppi voru 625 1. janúar 2021. Aðalatvinnuvegir eru landbúnaður og ferðaþjónusta. Veðursæld er í Skaftárhreppi þar sem vetur eru mildir og sumur hlý. Margar náttúruperlur eru í hreppnum s.s. Landbrotshólarnir, Dverghamrar og Fjaðrárgljúfur. Hluti Skaftárhrepps er á Vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem eru Lakagígar, Eldgjá og Langisjór. Nánari upplýsingar má finna á www.klaustur.is VinnustaðurinnVinnustaðurinn
Deildarstjóri yfir leikskóladeild Kirkjubæjarskóla
Kirkjubæjarskóli óskar eftir að ráða deildarstjóra yfir leikskóladeild skólans. Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur umsjón með daglegri starfsemi leikskólans, gerir námskrá, ársáætlun, ársskýrslu og mat á starfsemi leikskólans í samvinnu við skólastjóra
- Heldur utan um ráðningar í samstarfi við skólastjóra
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu
- Hefur forystu um og styður við samstarf í samræmi við farsældarlög og er tengiliður farsældar
- Hefur umsjón með stefnu skólas
- Áheyrnafulltrúi í Velferðarráði
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra, stjórnendur og fagfólk Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Framúrskarandi hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Faglegur metnaður, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð þekking í upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
- Góð íslenskukunnátta, að lámarki C1
- Hreint sakavottorð Nýlega voru skólastofnanirnar Kirkjubæjarskóli á Síðu og Heilsuleikskólinn Kæribær sameinaðar í einn samrekinn skóla. Einkunnarorð skólans eru: Kærleikur, bjartsýni, samvinna. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu skólans: Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026. Um er að ræða fullt starf. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Skaftárhreppur getur aðstoðað við leit á húsnæði á hagstæðum kjörum. Kirkjubæjarklaustur er í Skaftárhreppi um 250 km austur af Reykjavík. Í sveitarfélaginu búa um 700 íbúar. Á Klaustri er taktur lífsins rólegri og möguleikar til útivistar í einstakri náttúrufegurð eru óþrjótandi. Upplýsingar veita Elísabet Gunnarsóttir
- skólastjóri Kirkjubæjarskóla á Síðu, [REDACTED_EMAIL] Geirlaug Jóhannsdóttir
- framkvæmdastjóri Hagvangs, [REDACTED_EMAIL] Auglýsing birt27. mars 2026Umsóknarfrestur14. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynMjög góðEnskaNauðsynMeðalhæfniStaðsetningKlausturvegur 4, 880 KirkjubæjarklausturStarfstegundFullt starfStarfsgreinarKennsla og rannsóknirStjórnunarstörfStarfsmerkingarGrunnskólakennariLeikskólakennariUppeldis og menntunarfræðingurLeikskólastjóriSækja umFleiri störf (7)Sambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.