Rennismiður
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningHéðinnHéðinn er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni með yfir 100 ára reynslu af þjónustu við sjávarútveg, stóriðju og orkuiðnað, bæði hérlendis og erlendis. Hjá fyrirtækinu starfa um 150 manns við fjölbreytt störf, allt frá hönnun að fullbúnum vörum ásamt viðhalds- og þjónustuverkefnum um allan heim. Héðinn leitast við að veita samkeppnishæfa þjónustu á öllum sviðum og leggur mikið upp úr góðri starfsaðstöðu og aðbúnaði. Að auki leggur fyrirtækið áherslu á að fylgja framþróun í tækjakosti eins og unnt er til að auðvelda störf og auka gæði og framleiðni. Starfsemin snýst einkum um fjölbreytta málmsmíði, vélaviðgerðir, endurnýjun og viðhald og helstu viðskiptavinir eru sjávarútvegsfyrirtæki, orkufyrirtæki, stóriðjufyrirtæki, sveitarfélög og önnur málmiðnaðarfyrirtæki. Stærstu verkefnin í dag eru fyrir sjávarútveginn og stóriðju. Þessi verkefni spanna allt frá því að reisa fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi eða úti í heimi yfir í umhverfisvæna nýsköpun, viðgerðir og smíði. Héðinn rekur fimm starfsstöðvar en meginþorri starfsfólks starfar í höfuðstöðvum félagsins við Gjáhellu. Aðrar starfsstöðvar eru þjónustuverkstæði á Grundartanga og útibú á Akureyri og í Noregi. Húsakynnin við Gjáhellu eru 8.000 fermetrar og lóðin 20.000 fermetrar. Í húsinu er mötuneyti fyrir starfsfólk og glæsileg líkamsræktaraðstaða. Að auki hefur nýverið tekið í notkun stórglæsilegt afþreyingarrými fyrir starfsmenn með golf- og skothermi, píluspjöldum og fleiru sem starfsmenn geta nýtt sér utan vinnutíma. VinnustaðurinnVinnustaðurinn
Rennismiður
Héðinn hf. leitar að reynslumiklum rennismið í öflugt renniverkstæði fyrirtækisins í Hafnarfirði.
Hjá Héðni starfar öflugt teymi fagfólks sem vinnur að krefjandi og fjölbreyttum verkefnum fyrir sjávarútveg, orkufyrirtæki og stóriðju. Við erum rótgróið en framsækið fyrirtæki með yfir 100 ára reynslu í málmiðnaði og véltækni
- og við leggjum metnað í fagmennsku, nákvæmni og lausnamiðaða hugsun.
Renniverkstæði Héðins er vel búið bæði tölvustýrðum og handstýrðum rennibekkjum og fræsivélum. Þar mætast hefðbundin fagkunnátta og nútímaleg tækni í verkefnum sem krefjast nákvæmni, útsjónarsemi og faglegs stolts.
Farið er yfir umsóknir um leið og þær berast og því hvetjum við áhugasama að sækja um sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Nýsmíði samkvæmt teikningum
Viðgerðir og endurnýjanir íhluta
Viðhaldsverkefni fyrir fjölbreyttan viðskiptahóp Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af CNC rennibekkjum
Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta Fríðindi í starfi
Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur.
Stórglæsilegt starfsmannarými með golf- og skothermi.
Líkamsræktaraðstaða og búningsklefar með sturtu.
Öflugt starfsmannafélag og frábær starfsandi.
Við vorum að taka við glæsilegum, nýjum rennibekk.
**
Auglýsing birt25. mars 2026Umsóknarfrestur6. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniEngar sérstakar tungumálakröfurStaðsetningGjáhella 4, 221 HafnarfjörðurStarfstegundFullt starfStarfsgreinarIðnaðarstörfStarfsmerkingarRennismiðurÖnnur iðnaðarstörfSækja umSambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.