AlfredMerkigerði 9, 300 Akranes

Yfirlæknir við lyflækningadeild HVE Akranesi

Description

AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningHeilbrigðisstofnun VesturlandsHeilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) veitir íbúum umdæmisins og öðrum, almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu í samræmi við lög og reglur á hverjum tíma. Lögð er áhersla á virðingu, traust og fagmennsku. Velferð skjólstæðinga skal höfð að leiðarljósi. Stuðlað er að virkri sí- og endurmenntun starfsfólks. HVE tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og aðrar menntastofnanir. Kjarnastarfsemin skiptist á þrjú málefnasvið eftir meginviðfangsefnum. Heilsugæslusvið Læknisþjónusta, hjúkrun, geðheilbrigðisþjónusta, heilsuvernd, forvarnir, slysa- og bráðaþjónusta og annast sjúkraflutninga. Hjúkrunarsvið starfrækir hjúkrunarrými á starfsvæðinu þar sem slík þjónusta er ekki rekin af öðrum. Sjúkrasvið starfrækir umdæmissjúkrahús, almenn sjúkrarými og endurhæfingu. Heilbrigðisumdæmi Vesturlands nær yfir Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra.VinnustaðurinnVinnustaðurinn

Yfirlæknir við lyflækningadeild HVE Akranesi

Staða yfirlæknis við lyflækningadeild HVE, Akranesi er laus til umsóknar. Um er að ræða 100% stöðu sem veitist frá 1 september. 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirlæknir hefur umsjón og ber ábyrgð á lækningastarfi við deildina.

  • Starfinu fylgir vaktskylda, vinna á göngudeild, þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og starfsþjálfun sérnámsgrunnlækna.

  • Viðkomandi sinnir samskipum við sjúklinga, aðstandendur og annað heilbrigðisstarfsfólk.

  • Sér um gerð vaktaáætlana og skipulag afleysinga.

  • Hefur frumkvæði að gæða og umbótaverkefnum.

  • Hefur fjárhagslega ábyrgð skv. rekstraráætlunum og sinnir skráningu og skýrslugerð eftir því sem framkvæmdstjóri lækninga gerir kröfur um.

  • Starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012, lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sérfræðiréttindi í almennum lyflækningum og íslenskt starfsleyfi

  • Viðurkenning í einhverri af undirgreinum lyflækninga er kostur

  • Menntun og/eða reynsla á sviði stjórnunar er æskileg

  • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu

  • Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum

  • Reynsla af kennslu og þekking á vísindastörfum æskileg

Sækja skal um á starfatorg.is. Umsókn skal fylgja ítarlegar upplýsingar um nám, starfsferil, rannsóknir og kennslustörf.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) samanstendur af átta starfsstöðvum. HVE veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Vesturlands í samræmi við lög og reglur á hverjum tíma. Þjónustan er veitt íbúum umdæmisins og öðrum sem eftir henni leita.

Kjarnastarfsemin skiptist á þrjú málefnasvið eftir meginviðfangsefnum; heilsugæslusvið, hjúkrunarsvið og sjúkrasvið. Heilbrigðisumdæmi Vesturlands nær yfir sveitarfélögin Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra.

Auglýsing birt27. mars 2026Umsóknarfrestur15. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynFramúrskarandiEnskaNauðsynMeðalhæfniStaðsetningMerkigerði 9, 300 AkranesStarfstegundFullt starfHæfniPathCreated with Sketch.LæknirStarfsgreinarHeilbrigðisþjónustaStarfsmerkingarHeilbrigðisvísindiLæknirSérfræðilæknirYfirlæknirSækja umFleiri störf (2)Sambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur

Skills

.NETdotnet

Want AI to find more roles like this?

Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.

Try personalized matching