80-100% NPA sumarstarf - 1 helgi í mánuði og 3-4 virkir dagar
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningForréttindiVinnustaðurinnVinnustaðurinn
80-100% NPA sumarstarf - 1 helgi í mánuði og 3-4 virkir dagar
Ertu peppuð, sveigjanleg og op****inhuga manneskja í atvinnuleit?
Þá er ég að leita að þér!
Ég er að leita að NPA aðstoðarkonu.
Ég er hreyfihömluð kona á fertugsaldri, búsett í Hafnarfirði með syni mínum og maka. Ég er doktorsnemi og starfa fyrir baráttusamtök fatlaðra kvenna og kvàr.
Ég þarf aðstoð við flest allt sem fylgir því að vera manneskja og taka virkan þátt í samfélaginu. Ég þarf m.a. aðstoð við persónulegt hreinlæti, heimilisstörf, eldamennsku og við að komast á milli staða.
Um er að ræða 80-100% starf yfir sumarið eða 5-6 sólarhringsvaktir, þar með talið 1 helgi í mánuði.
Möguleiki á framhaldi í haust. Starfið er kjörið meðfram námi eða öðrum verkefnum þar sem um lengri og færri vaktir á mánuði er um að ræða, en hefðbundið er. Þ.e. sólarhringsvaktir sem fela í sér sofandi næturvaktir.
Umsækjendur þurfa að hafa bílpróf, tala íslensku eða ensku, vera sveigjanlegir, tilbúnir í góða samvinnu og opnir fyrir nýrri reynslu. Einnig að vera reyk- og rafrettulaus og með hreint sakavottorð.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið aðlögun í lok maí mánaðar.
Auglýsing birt2. apríl 2026UmsóknarfresturEnginnSækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaValkvættMeðalhæfniEnskaNauðsynMeðalhæfniStaðsetningDrekavellir 26, 221 HafnarfjörðurStarfstegundFullt starfHlutastarfHentugt fyrirNámsfólkStarfsgreinarHeilbrigðisþjónustaStarfsmerkingarAðstoðarmanneskjaÞjónusta við fatlað fólkSækja umSambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.