Full stack forritari
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningHelix HealthHelix Health hefur þróað tæknilausnir fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi í 30 ár. Hér vinnur metnaðarfullt teymi með fjölbreyttan bakgrunn sem hefur það að leiðarljósi að vilja hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Lausnir Helix ganga meðal annars út á að minnka þann tíma sem fer í skráningu hjá heilbrigðisstarfsfólki, auka öryggi skjólstæðinga og hagræða í rekstri heilbrigðisstofnana. VinnustaðurinnVinnustaðurinn
Full stack forritari
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum alhliðaforritara (fullstack) með brennandi áhuga á að þróa öflugar og öruggar hugbúnaðarlausnir fyrir heilbrigðisstarfsfólk og sjúklinga. Hjá Helix Health hafa traustar og skilvirkar lausnir bein áhrif á líf fólks. Hver lína af kóða getur sparað dýrmætan tíma, aukið öryggi og haft raunveruleg áhrif á líðan og lífsgæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks. Ef þú vilt vinna að lausnum sem skipta máli, þá viljum við heyra frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
Taka virkan þátt í þróun og viðhaldi hugbúnaðarlausna Helix
Vinna náið með fjölbreyttum teymum með því markmiði að skapa öflugar og áreiðanlegar lausnir
Nýta ný tól og aðferðir (m.a. gervigreind) til að auka skilvirkni og gæði í þróun
Sjá til þess að þróun bakenda fylgi viðurkenndum vinnulögum og bestu verklagsreglum, með áherslu á gæði, öryggi og viðhald
Taka þátt í samþættingu milli kerfa og tryggja áreiðanlegt gagnaflæði
Deila þekkingu, taka þátt í kóðaúttektum og styðja samfellda faglega þróun teymisins
Leggja sitt af mörkum til lausnamiðaðs og jákvæðs teymisanda, þar sem samvinna og virðing eru í forgrunni Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af.NET (C#)
Reynsla af Angular
kostur
Reynsla af GraphQL - kostur
Þekking á gagnagrunnum - kostur
Reynsla af samþættingu milli kerfa - kostur
Jákvætt viðhorf, lausnamiðuð hugsun og góð samskiptahæfni
Menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegum greinum, eða sambærileg reynsla Fríðindi í starfi
Tækifæri til að starfa í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi.
Hvetjandi verkefni þar sem virðing og samvinna eru lykilatriði.
Sveigjanleika og tækifæri til persónulegs og faglegs vaxtar.
Tækifæri til að vinna með nýjustu tækni, þar á meðal gervigreind, í raunverulegum verkefnum.
Samgöngustyrk og íþróttastyrk
Líkamsræktaraðstaða í húsinu
Frábært mötuneyti
Metnaðarfullur stuðningur við starfsfólk í fæðingarorlofi Auglýsing birt29. mars 2026Umsóknarfrestur9. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniEnskaNauðsynMjög góðÍslenskaNauðsynMeðalhæfniStaðsetningBorgartún 37, 105 ReykjavíkStarfstegundFullt starfStarfsgreinarUpplýsingatækniStarfsmerkingarForritariVefforritariSækja umFleiri störf (1)Sambærileg störf (12) Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.