Söluráðgjafi Vatn og veitna á Selfossi
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningVatn & veiturVatn & veitur hf var stofnað árið 2010. Frá stofnun þess hefur það sérhæft sig í sölu og þjónustu til fagmanna á pípulagninga- og veitumarkaði. Árið 2017 sameinaðist fyrirtækið Efnissölu G.E.Jóhannssonar undir nafni Vatns & veitna. Efnissala G.E.Jóhannsson hóf starfsemi árið 1978 sem verktaka- og innflutnings fyrirtæki, en síðar varð starfsemin einskorðuð við heildsölu og innflutning á lagnaefni og hreinlætistækjum. Sameinað fyrirtæki er í dag rekið sem sjálfstæð rekstrareining en er hluti af Fagkaup ehf og er í eigu þess. Fyrirtækið rekur verslanir að Smiðjuvegi 68-72 ásamt vöruhúsi, verslun Bolafæti 1 í Reykjanesbæ, að Austurvegi 69, Selfossi og Óseyri 1a, Akureyri. Sjá nánar á vefsíðu fyrirtækisins www.vatnogveitur.isVinnustaðurinnVinnustaðurinn
Söluráðgjafi Vatn og veitna á Selfossi
Söluráðgjafi óskast í Vatn og veitur, Selfossi
Vatn & veitur leitar að framsæknum og jákvæðum einstaklingi til starfa í verslun sína á Selfossi. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf hjá ört vaxandi fyrirtæki með jákvæðu og samheldu starfsfólki.
Vatn og veitur er eitt fyrirtækja innan Fagkaupa. Fagkaup á og rekur einnig verslunar- og þjónustufyrirtækin Johan Rönning, Sindra, S. Guðjónsson, KH-vinnuföt, Fossberg, Hagblikk, Varma og vélaverk, Ísleif, og Áltak. Fagkaup á einnig 70% hlut í DS lausnum. Hjá Fagkaupum starfa rúmlega 300 starfsmenn í Reykjavík, Kópavogi, Fjarðabyggð, Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Grundartanga, Selfossi og Akureyri.
Fagkaup starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Auk þess hefur Fagkaup hlotið vottun skv. ISO 9001 gæðastaðlinum.
Eitt af lykilmarkmiðunum er að fara fram úr væntingum viðskiptavina. Til að ná þeim markmiðum er hæft starfsfólk mikilvægur partur í daglegum störfum Fagkaupa. Lögð er áhersla á góðan starfsanda og góðan aðbúnað starfsfólks. Starfsþróun og tækifæri til vaxtar þar sem fræðsla til starfsfólks er lykilþáttur í að auka þekkingu starfsfólks og efla í daglegum störfum.
Frekari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.vatnogveitur.is og einnig á www.fagkaup.is
Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til 11.apríl.
Við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð aldri, kyni og uppruna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni eru þessi:
Samskipti við viðskiptavini útibús
Gerð sölutilboða til pípulagnaverktaka
Móttaka viðskiptavina og ráðgjöf til þeirra
Almenn sölustörf
Tiltekt og áfylling í verslun
Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af sölustörfum og/eða pípulagningum
Sveinspróf í pípulögnum er kostur
Þjónustulund og jákvætt viðmót
Almenn tölvukunnátta
Hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og metnaður í starfi Fríðindi í starfi
Niðurgreiddur hádegsimatur.
Líkamsræktarstyrkur.
Samgöngustyrkur til umhverfisvænna ferðamáta.
Að auki bjóðum við:
- Góðan vinnustað þar sem lögð er rækt við vellíðan og vöxt starfsfólks
- Frábæra vinnufélaga og góðan starfsanda
- Árlega heilsufarsskoðun og heilsueflingu
- Afsláttarkjör af vörum félagsins
- Sveigjanlegt starfsumhverfi
- Ýmsa viðburði á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi Auglýsing birt26. mars 2026Umsóknarfrestur11. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynFramúrskarandiEnskaNauðsynMjög góðStaðsetningAusturvegur 69, 800 SelfossStarfstegundFullt starfHæfniPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.PípulagningarPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.ViðskiptasamböndVinnuumhverfiOpið vinnurýmiSameiginleg starfsstaðaStarfsgreinarSölu- og markaðsstörfStarfsmerkingarSölufulltrúiSölumaðurSöluráðgjöfSækja umSambærileg störf (12) Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.