Verkstjóri í uppsjávarvinnslu – Eskju
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningEskja Vinnsla ehf.Eskja er fjölskyldufyrirtæki á Eskifirði sem hefur verið leiðandi afl í íslenskum sjávarútvegi síðustu 70 árin. Fyrirtækið hét áður Hraðfrystihús Eskifjarðar og var stofnað 8. maí 1944 í því skyni að skjóta styrkum stoðum undir fábreytilegt atvinnulíf bæjarins. Stofnendur félagsins voru um þrjú hundruð einstaklingar og fyrirtæki á staðnum. Alla tíð síðan hefur Eskja verið kjölfestan í atvinnulífi Eskifjarðar. Félagið hefur vaxið og dafnað í áranna rás og starfsmenn fyrirtækisins eru í dag um 100 talsins. Markmið okkar er að standa í fremstu röð, nota ávallt bestu framleiðslutækni sem völ er á og framleiða hágæðavörur úr íslenskum fiski fyrir kröfuhörðustu markaði heims. Þá leggjum við einnig ríka áherslu á fræðslu og endurmenntun starfsfólks okkar. Eskja hefur frá fyrstu tíð haft það að leiðarljósi að umgangast fiskimiðin umhverfis Ísland af ábyrgð og virðingu, í samræmi við lög og reglur og að lágmarka umhverfisáhrif starfseminnar.VinnustaðurinnVinnustaðurinn
Verkstjóri í uppsjávarvinnslu
- Eskju
Eskja leitar að öflugum og metnaðarfullum Verkstjóra til starfa í uppsjávarvinnslu félagsins á Eskifirði. Um er að ræða krefjandi og spennandi starf í framsækinni matvælaframleiðslu þar sem lögð er áhersla á gæði, fagmennsku og gott samstarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stjórnun og skipulagning daglegrar vinnu í uppsjávarvinnslu
Umsjón með móttöku og vinnslu hráefnis, vigtun og skráningu
Skipulag og eftirfylgni með framleiðslu samkvæmt áætlunum
Skjót úrlausn rekstrar- og framleiðsluvandamála í samstarfi við viðhaldsteymi
Tryggja að verklag, gæðakröfur og öryggisreglur séu virtar
Stjórnun, hvatning og þróun starfsfólks
Eftirlit með tímaskráningum, mætingum og leyfistöku
Samvinna við gæðaeftirlit varðandi þrif, hreinlæti og afurðagæði
Skráningar og eftirfylgni í rekstrarkerfum (m.a. Innova)
Þátttaka í gæðastarfi, sannprófunum og vottunum (m.a. MSC) Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af stjórnun eða verkstjórn í framleiðslu eða vinnslu
Góð þekking á framleiðsluferlum og tæknilegum búnaði
Leiðtogahæfni og sterk samskiptahæfni
Skipulagshæfni og geta til að leysa vandamál hratt og markvisst
Góð tölvukunnátta og reynsla af rekstrar- eða framleiðslukerfum
Góð færni í ræðu og riti á íslensku og/eða ensku Auglýsing birt23. mars 2026Umsóknarfrestur15. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniEngar sérstakar tungumálakröfurStaðsetningEskifjörður, 735 EskifjörðurStarfstegundFullt starfVaktavinnaStarfsgreinarHeilbrigðisþjónustaIðnaðarstörfStarfsmerkingarTeymisvinnaFiskvinnslaSækja umFleiri störf (2)Sambærileg störf (12) Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.