Óska eftir aðstoðarkonu í fjölbreytt starf
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningNPA miðstöðinNPA miðstöðin aðstoðar fatlað fólk og aðstandendur við það utanumhald og þá umsýslu sem fylgir því að hafa notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin veitir m.a. ráðgjöf, heldur fræðslunámskeið, greiðir aðstoðarfólki laun og sér um launatengd mál. Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana. Persónulegt aðstoðarfólk aðstoðar NPA notendur við sitt daglega líf, svo það hafi sömu möguleika og ófatlað fólk.VinnustaðurinnVinnustaðurinn
Óska eftir aðstoðarkonu í fjölbreytt starf
Ég er 37 ára kona sem bý í Kópavogi ásamt 20 mánaða dóttur minni. Einnig eru tveir kettir á heimilinu.
Ég er hjólastóla notandi en ég fæddist með CP hreyfihömlun.
Ég elska að ferðast, er mikið fyrir að vera úti að gera og græja. Elska að fara à tónleika og íþróttaleiki. Er mikill félagsvera og stemmingskona sem elska góðan mat.
Ég óska eftir kvenkyns aðstoðarfólki 25 ára og eldra í NPA teymið mitt sem finnst gaman að vera á ferðinni og gera allskonar.
Um starfið:
Starfið felur í sér aðstoð við daglegt líf m.a. við heimilisstörf. Starfið felur einnig í sér að vera framlenging á mér í hverju sem ég vil taka mér fyrir hendur frá degi til dags í lífi, leik og starfi.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af því að umgangast börn, vera barngóð og viti að hlutverk aðstoðarfólks felst einnig í því að sinna þeim þörfum barna sem foreldrar sinna frá degi til dags, t.d. að sækja í / skutla í leikskóla, fara með þeim út að leika o.s.frv.
Vinnutími: Virkir frá 7:30. Einnig vantar mig á kvöldvaktir og helgarvaktir.
Ég er að leita að aðstoðarfólki í hlutastarf og hefst starfið eftir páska.
Hæfniskröfur:
Ekki er gerð krafa um starfsreynslu eða sérstaka menntun, en lögð er áhersla á að umsækjendur temji sér stundvísi, jákvæðni, heiðarleika og virðingu í samskiptum.
Kostur ef umsækjandi hefur áhuga á matargerð, kunnáttu eða áhuga á samfélagsmiðlum og vefsíðugerð.
Reykleysi, íslensku kunnátta, bílpróf og hreint sakavottorð eru skilyrði.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.
**Hægt er að lesa um hugmyndafræðina hér: **
Auglýsing birt30. mars 2026Umsóknarfrestur13. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynFramúrskarandiStaðsetningKópavogurStarfstegundHlutastarfVaktavinnaStarfsgreinarHeilbrigðisþjónustaStarfsmerkingarAlmenn störfAðstoðarmanneskjaFélagsliðiNemi í heilbrigðisþjónustuÞjónusta við fatlað fólkSækja umFleiri störf (12)Sambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.