Tónmenntakennari - Skarðshlíðarskóli
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningHafnarfjarðarbærHafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með rúmlega 30 þúsund íbúa og um um 2500 starfsfólk sem sinna fjölbreyttum störfum á um 70 starfsstöðvum um allan bæ. Mannauðurinn er okkur dýrmætur. Lögð er áhersla á að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Við viljum vera áhugaverður og góður vinustaður og árangur okkar er undir reyndu og hæfileikaríku fólki kominn. Við leggjum áherslu á að skapa starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að efla þekkingu sína, hefur tækifæri til þróunar og fái hvatningu til að sýna frumkvæði og njóta sín í starfi sem skilar sér í aukinni starfsánægju og góðri þjónustu við bæjarbúa. Við erum heilsueflandi vinnustaður og viljum að öllum líði vel í vinnunni og bæði stjórnendur og starfsfólk leggja sitt að mörkum við að ýta undir og skapa sem best vinnuumhverfi á öllum okkar starfsstöðvum. Ef þú hefur áhuga á að bætast í hóp starfsmanna hjá Hafnarfjarðarbæ þá hvetjum við þig til að senda inn umsókn. VinnustaðurinnVinnustaðurinn
Tónmenntakennari - Skarðshlíðarskóli
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum tónmenntarkennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í 70% starf. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Nú eru um 530 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. Í haust hefst öflugt samstarfsverkefni milli leik, grunn og tónlistarskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Tónmenntakennsla í grunnskólanum
- Tónmenntakennsla í leikskólanum í sama húsnæði
- Forskólatími í sama húsnæði
- Halda utan um samstarfsverkefni leik-, grunn- og tónlistarskólans
- Taka þátt í uppbyggingu á nýju skólasamfélagi í samvinnu við stjórnendur
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
- Haldgóð þekking á kennslufræði tónmenntakennslu
- Tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námaðlögun og samþættingu
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góða íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma XXX-XXX-XXXX og Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma XXX-XXX-XXXX
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl. 2026
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Auglýsing birt30. mars 2026Umsóknarfrestur10. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynMjög góðStaðsetningHádegisskarð 1, 221 HafnarfjörðurStarfstegundHlutastarfStarfsgreinarKennsla og rannsóknirStarfsmerkingarGrunnskólakennariTónlistarkennariSækja umFleiri störf (44)Sambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.