AlfredGrundargata 44, 350 Grundarfjörður

Aðstoðarskólameistari – Fjölbrautaskóli Snæfellinga

Description

AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningFjölbrautaskóli SnæfellingaFjölbrautaskóli Snæfellinga er framhaldsskóli með sveigjanlegt og nýstárlegt námsfyrirkomulag þar sem flest námsrýmin eru opin. Frá stofnun skólans hefur skólinn verið leiðandi í breyttum kennsluháttum með því að nýta sér upplýsingatækni í skólastarfi. Allt skipulag skólans tekur mið af því. VinnustaðurinnVinnustaðurinn

Aðstoðarskólameistari

  • Fjölbrautaskóli Snæfellinga Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir aðstoðarskólameistara í 50% stöðu frá og með 1. ágúst 2026. Aðstoðarskólameistari er staðgengill skólameistara og nánasti samstarfsaðili hans í daglegri stjórnun, stefnumótun og þróun skólastarfs. Leitað er að framsýnum leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á menntamálum, einlægan metnað fyrir velgengni nemenda og framgangi í námi auk vilja til að vinna að framsæknu skólastarfi með nemendum, starfsfólki, stjórn og nærsamfélagi. Aðstoðarskólameistari er leiðandi þegar kemur að nýtingu á tækni í skólastarfi, nýsköpun og þróun í kennslu og skipulagi náms. Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mótun skólastarfs á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla
  • Þátttaka í stefnumótun og áframhaldandi þróun og nýsköpun í skólastarfi
  • Skipulag námsframboðs
  • Skipulag kennslu og stundaskrár
  • Veitir kennslufræðilega forystu
  • Ábyrgð á námsmati og mati náms úr öðrum skólum
  • Ábyrgð á gæðastarfi og sjálfsmati
  • Aðkoma að upplýsingamiðlun á vefmiðlum
  • Samskipti við nemendur, starfsfólk og stjórn
  • Umsjón með útskriftarnemum Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og leyfisbréf kennara, viðbótarmenntun í stjórnun æskileg.
  • Reynsla af kennslu í framhaldsskóla æskileg
  • Reynsla og þekking á stefnumótun og mótun framtíðarsýnar menntastofnana æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar
  • Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Gott vald á íslensku og ensku í bæði töluðu og rituðu máli
  • Áhugi á nýtingu tækni í skólastarfi
  • Hreint sakavottorð og gott orðspor Launakjör eru í samræmi við gildandi kjarasamning fjármálaráðherra við viðkomandi stéttarfélag og stofnanasamning skólans. Umsókn skal fylgja kynningarbréf, yfirlit yfir nám og fyrri störf og leyfisbréf fyrir starfsheitið kennari. Fjölbrautaskóli Snæfellinga er áfangaskóli sem býður upp á sex bóknámsbrautir til stúdents prófs; félags- og hugvísindabraut, opna braut, náttúru og raunvísindabraut, náttúru- og raunvísindabraut, búfræðilínu, íþrótta- og lýðheilsubraut og nýsköpunar- og frumkvöðlabaut. Einnig er boðið upp á nám á framhaldsskólabraut 2 og viðbótarnám til stúdentsprófs.  Við skólann er starfrækt starfsbraut fyrir nemendur sem hafa greiningu fagaðila og geta ekki nýtt sér annað nám við skólann. Fjölbrautaskóli Snæfellinga er framhaldsskóli með sveigjanlegt og nýstárlegt námsfyrirkomulag þar sem flest námsrýmin eru opin. Frá stofnun skólans hefur skólinn verið leiðandi í breyttum kennsluháttum með því að nýta sér upplýsingatækni í skólastarfi. Allt skipulag skólans tekur mið af því.  Síðastliðið ár hefur verið unnið að innleiðingu gervigreindar í námi, kennslu og stjórnun og fékk skólinn styrk úr Sprotastjóði í það verkefni.

Heimasíðu skólans má finna hér: Nánari upplýsingar gefur

Hrafnhildur Hallvarðsdóttir Skólameistari Netfang: [REDACTED_EMAIL] Umsóknarfrestur er til 13. apríl 2026 Auglýsing birt26. mars 2026Umsóknarfrestur13. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniEnskaNauðsynMjög góðÍslenskaNauðsynMjög góðStaðsetningGrundargata 44, 350 GrundarfjörðurStarfstegundHlutastarfStarfsgreinarKennsla og rannsóknirStarfsmerkingarFramhaldsskólakennariSkólastjóriSækja umSambærileg störf (12) Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur

Skills

.NETdotnet

Want AI to find more roles like this?

Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.

Try personalized matching