Sérfræðingur í kvensjúkdóma- og fæðingalækningum
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningHeilbrigðisstofnun VesturlandsHeilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) veitir íbúum umdæmisins og öðrum, almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu í samræmi við lög og reglur á hverjum tíma. Lögð er áhersla á virðingu, traust og fagmennsku. Velferð skjólstæðinga skal höfð að leiðarljósi. Stuðlað er að virkri sí- og endurmenntun starfsfólks. HVE tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og aðrar menntastofnanir. Kjarnastarfsemin skiptist á þrjú málefnasvið eftir meginviðfangsefnum. Heilsugæslusvið Læknisþjónusta, hjúkrun, geðheilbrigðisþjónusta, heilsuvernd, forvarnir, slysa- og bráðaþjónusta og annast sjúkraflutninga. Hjúkrunarsvið starfrækir hjúkrunarrými á starfsvæðinu þar sem slík þjónusta er ekki rekin af öðrum. Sjúkrasvið starfrækir umdæmissjúkrahús, almenn sjúkrarými og endurhæfingu. Heilbrigðisumdæmi Vesturlands nær yfir Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra.VinnustaðurinnVinnustaðurinn
Sérfræðingur í kvensjúkdóma- og fæðingalækningum
Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum við kvennadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Starfshlutfall er 60-89% og er starfið laust frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem boðleiðir eru stuttar og tækifæri til að taka virkan þátt í faglegri þróun, gæðastarfi og öflugri teymisvinnu.
Um starfseininguna
Á deildinni starfar samstilltur hópur sérfræðilækna í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir þar sem lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu. Fjölbreytt og öflug starfsemi á sviði kvensjúkdómaaðgerða fer fram á skurðstofum flesta daga vikunnar. Veitt er sérhæfð fæðingaþjónusta þar sem konur geta fætt við fullar 37 vikur. Aðgangur er að skurðstofum þar sem svæfingalæknar eru á vakt allan sólarhringinn. Svæfingalæknar HVE eru þjálfaðir í meðferð nýbura og starfa í góðri samvinnu við nýburalækna á Vökudeild Landspítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fæðingaþjónusta og mæðravernd
Göngudeildarþjónusta
Skurðaðgerðir
Vaktþjónusta á fæðinga- og kvensjúkdómadeild
Þátttaka í gæðastarfi og faglegri þróun
Þáttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun sérnámslækna og önnur sérverkefni í samráði við yfirlækni Menntunar- og hæfniskröfur
Sérfræðiviðurkenning í kvensjúkdóma- og fæðingalækningum og gilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis
Bakvaktarfærni
Góð samskiptahæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
Jákvæðni, lipurð og áreiðanleiki í starfi
Æskilegt að hafa góða íslensku- og enskukunnáttu
Réttur áskilinn til að hafna umsóknum sem ekki uppfylla skilyrði
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsækjendur sækja um á starfatorg.is
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Ítarleg náms- og starfsferilskrá
Staðfest gögn um menntun, læknisstörf og vísindavinnu
Afrit af opinberu starfsleyfi
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfi
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum.
Auglýsing birt27. mars 2026Umsóknarfrestur13. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniÍslenskaNauðsynFramúrskarandiEnskaNauðsynMjög góðStaðsetningMerkigerði 9, 300 AkranesStarfstegundFullt starfHlutastarfStarfsgreinarHeilbrigðisþjónustaStarfsmerkingarHeilbrigðisvísindiLæknirSkurðlæknirSérfræðilæknirSækja umFleiri störf (2)Sambærileg störf (12)Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.