Framendaforritari
Description
AuglýsaUpplýsingarNýskráningInnskráningHelix HealthHelix Health hefur þróað tæknilausnir fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi í 30 ár. Hér vinnur metnaðarfullt teymi með fjölbreyttan bakgrunn sem hefur það að leiðarljósi að vilja hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Lausnir Helix ganga meðal annars út á að minnka þann tíma sem fer í skráningu hjá heilbrigðisstarfsfólki, auka öryggi skjólstæðinga og hagræða í rekstri heilbrigðisstofnana. VinnustaðurinnVinnustaðurinn
Framendaforritari
Við leitum að metnaðarfullum og notendamiðuðum framendaforritara með brennandi áhuga á hönnun og vilja til þess að byggja lausnir sem að hafa raunveruleg áhrif.
Hjá Helix Health hefur skýr og skilvirk hönnun framenda bein áhrif á líf fólks. Hver lína af kóða getur sparað dýrmætan tíma, aukið öryggi og haft raunveruleg áhrif á líðan og lífsgæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks.
Ef þú vilt vinna að lausnum sem skipta máli, þá viljum við heyra frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Taka virkan þátt í þróun og viðhaldi notendaviðmóts hugbúnaðarlausna Helix
· Vinna náið með hönnuðum, vörustjórum og þróunarteymi að því að skapa notendavænar og árangursríkar lausnir
· Nýta ný tól og aðferðir (m.a. gervigreind) til að auka skilvirkni og gæði í þróun
· Sjá til þess að þróun framenda fylgi viðurkenndum og bestu verklagsreglum, með áherslu á gæði, aðgengi og viðhald
· Vera málsvari fyrir góða notendaupplifun og leggja til úrbætur sem bæta bæði virkni og útlit
· Deila þekkingu, taka þátt í kóðaúttektum og styðja samfellda faglega þróun teymisins
· Leggja sitt af mörkum til lausnamiðaðs og jákvæðs teymisanda þar sem samvinna og virðing eru í forgrunni
Menntunar- og hæfniskröfur
· Sterkur grunnur í HTML, CSS og TypeScript
· Skilningur á responsive hönnun og aðgengismálum (accessibility)
· Frumkvæði, sjálfstæði og sterkt lausnamiðað hugarfar.
· Hæfni til að skila lausnum í samstarfi við aðra
· Menntun í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegum greinum, eða sambærileg reynsla
· Reynsla af eða áhugi á að nýta gervigreind sem hluta af þróunarferli og daglegu vinnuflæði
· Vilji til að læra hratt, prófa nýja hluti og tileinka sér nýjar leiðir í þróun
Fríðindi í starfi
· Tækifæri til að starfa í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi.
· Hvetjandi verkefni þar sem virðing og samvinna eru lykilatriði.
· Sveigjanleika og tækifæri til persónulegs og faglegs vaxtar.
· Tækifæri til að vinna með nýjustu tækni, þar á meðal gervigreind, í raunverulegum verkefnum.
· Metnaðarfullur stuðningur við starfsfólk í fæðingarorlofi
Auglýsing birt29. mars 2026Umsóknarfrestur9. apríl 2026Sækja umVistaDeilaTungumálahæfniEnskaNauðsynMjög góðÍslenskaNauðsynMeðalhæfniStaðsetningBorgartún 37, 105 ReykjavíkStarfstegundFullt starfStarfsgreinarUpplýsingatækniStarfsmerkingarForritariVefforritariViðmótsforritariSækja umFleiri störf (1)Sambærileg störf (12) Námskeið í boði (4)Má bjóða þér smákökur?Við notum kökur til að greina umferð um vef okkar og bæta upplifun notenda.SérsníðaHafna öllumÞiggja allar kökur
Skills
Want AI to find more roles like this?
Upload your CV once. Get matched to relevant assignments automatically.